top of page
Mýrastigi

Taxus cuspidata 'Nana'

Dvergjapansýr

Ýviðarætt

Taxaceae

Hæð

um 50 - 100 cm

Blómlitur

kk gulbrúnn, kvk grænn

Blómgun

júní

Blómgerð

Aldin

rautt aldin

Lauflitur

dökkgrænn

Birtuskilyrði

sól - skuggi

Jarðvegur

vel framræstur, má vera kalkríkur, jafnrakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

takmörkuð reynsla

Heimkynni

garðayrki, tegundin vex villt í Evrópu og V-Asíu

Taxus, ýviðir, er lítil ættkvísl í ýviðarætt, Taxaceae. Allar tegundir ættkvíslarinnar eru náskyldar og sumir grasafræðingar vilja skilgreina þær allar sem undirtegundir af ýviði, Taxus baccata. Aðrir skilgreina 9 tegundir. Ýviðir hafa flatar, dökkgrænar nálar sem eru mjúkar viðkomu og þroska köngla sem líkjast opnum rauðum berjum sem umlykja eitt fræ. Þeir eru oftast einkynja (þ.e. plöntur eru annaðhvort kk eða kvk), þó það sé ekki algilt. Allir hlutar eru eitraðir að berjunum undanskildum, þar með talin fræin. Nokkur krabbameinslyf hafa verið þróuð út frá taxane eiturefnunum sem finnast í ýviðartegundum. Viðurinn er sveigjanlegur og var notaður í bogagerð. Ýviðir eru mikið notaðir í formklippingar erlendis. 

Fjölgun:


Sumargræðlingar

'Nana' er lágvaxið yrki af japansýr sem verður um 50-100 cm á hæð með þéttan, hvelfdan vöxt.  Það þrífst álíka vel og önnur yrki ættkvíslarinnar. Heimildum ber ekki saman um hvort þetta yrki sé karlkyns eða kvenkyns, en ýviðir er oftast einkynja (þ.e. plöntur eru annaðhvort kk eða kvk), þó það sé ekki algilt. Eins og nafnið bendir til á tegundin heimkynni í Japan. Vex í sól eða skugga í vel framræstum, hæfilega rökum jarðvegi.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page