Taxus cuspidata 'Nana'
Dvergjapansýr
Ýviðarætt
Taxaceae
Height
um 50 - 100 cm
Flower color
kk gulbrúnn, kvk grænn
Flowering
júní
Flower arrangement
The age
rautt aldin
Leaf color
dökkgrænn
Lighting conditions
sól - skuggi
Soil
vel framræstur, má vera kalkríkur, jafnrakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
takmörkuð reynsla
Homecoming
garðayrki, tegundin vex villt í Evrópu og V-Asíu
Taxus, ýviðir, er lítil ættkvísl í ýviðarætt, Taxaceae. Allar tegundir ættkvíslarinnar eru náskyldar og sumir grasafræðingar vilja skilgreina þær allar sem undirtegundir af ýviði, Taxus baccata. Aðrir skilgreina 9 tegundir. Ýviðir hafa flatar, dökkgrænar nálar sem eru mjúkar viðkomu og þroska köngla sem líkjast opnum rauðum berjum sem umlykja eitt fræ. Þeir eru oftast einkynja (þ.e. plöntur eru annaðhvort kk eða kvk), þó það sé ekki algilt. Allir hlutar eru eitraðir að berjunum undanskildum, þar með talin fræin. Nokkur krabbameinslyf hafa verið þróuð út frá taxane eiturefnunum sem finnast í ýviðartegundum. Viðurinn er sveigjanlegur og var notaður í bogagerð. Ýviðir eru mikið notaðir í formklippingar erlendis.
Fjölgun:
Sumargræðlingar
'Nana' er lágvaxið yrki af japansýr sem verður um 50-100 cm á hæð með þéttan, hvelfdan vöxt. Það þrífst álíka vel og önnur yrki ættkvíslarinnar. Heimildum ber ekki saman um hvort þetta yrki sé karlkyns eða kvenkyns, en ýviðir er oftast einkynja (þ.e. plöntur eru annaðhvort kk eða kvk), þó það sé ekki algilt. Eins og nafnið bendir til á tegundin heimkynni í Japan. Vex í sól eða skugga í vel framræstum, hæfilega rökum jarðvegi.