top of page

Viburnum lantana

Lambarunni

Geitblaðsætt

Caprifoliaceae

Height

1 - 4 m

Flower color

hvítur

Flowering

júní-júlí

Flower arrangement

-

The age

-

Leaf color

grágrænn

Lighting conditions

sól - hálfskuggi

Soil

frjór, rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Toughness

nokkuð harðgerður

Homecoming

Evrópa

Ættkvíslin Viburnum, úlfarunnar, telur um 150-175 tegundir með útbreiðslu um tempraðabeltið á norðurhveli. Hún var áður flokkuð í geitblaðsætt, Caprifoliaceae en hefur nú verið flutt í ættina Adoxaceae. Blómin eru lítil í klasa, hvít eða bleik. Hjá sumum tegundum er krans af stærri ófrjóum blómum í útjaðri blómaklasans sem þjóna þeim tilgangi að draga að skordýr.

Fjölgun:


Sumargræðlingar, sveiggræðsla.


Sáning:

Fersku fræi er best að sá strax og það þroskast og geyma úti fram á næsta vor.

Þurrkað fræ þarf fyrst að geyma í 2 mánuði við stofuhita og svo a.m.k. 3 m í kulda. Fræ getur verið lengi að spíra, svo það getur þurft að standa úti í tvo vetur áður en það spírar.


Lambarunni er stórvaxinn runni, sem stundum vex eins og lítið tré. Hann getur orðið allt frá 1-2 m upp í rúma 4 metra ef skilyrði eru góð. Ef hann vex sem runni, getur hann orðið nokkuð breiður, allt að 4 m. Hann blómstrar smáum, kremhvítum blómum í sveip. Laufið er grágrænt fyrst eftir laufgun, en verður síðar grænt. Það fær gula og purpurarauða haustliti. Nokkuð harðgerður í þokkalegu skjóli.

Do you have a photo or experience with this plant?

You can share photos and experiences here.

bottom of page