top of page

'Maxima'

sh. 'Alba Maxima'; 'Bonnie Prince Charlie's Rose'; 'Cheshire Rose'; 'Great Double White'

Bjarmarósir (Alba)

Uppruni

óþekktur, fyrir 1500

Hæð

um 60 - 150 cm

Blómlitur

hvítur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

einblómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

sterkur

Aldin

-

Lauflitur

grágrænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgerð, RHF2

Bjarmarósir eru afkomendur bjarmarósar, Rosa alba. Flestar með mikið fyllt blóm, bleikar eða hvítar með grágrænu laufi og mjög sterkum ilmi. Þær voru mikið ræktaðar á 19. öld.  Bjarmarósir þrífast vel hérlendis í góðu skjóli.  Þær þola skugga part úr degi.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone:  3b

Skandínavíski kvarði:  H7

Bjarmarós með fylltum, hvítum blómum. Eins og flestar aðrar antíkrósir blómstrar hún á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Kelur ekki mikið í góðu skjóli og blómgun því nokkuð örugg.

"Harðgerð rós, er um 2 m á hæð. Þakin blómum um mánaðarmót júlí ágúst, mikið ilmandi. H.2.Ísl."

-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page