top of page

'Suaveolens'

Bjarmarósir (Alba)

Uppruni

óþekktur, fyrir 1750

Hæð

um 1 - 2 m

Blómlitur

hvítur

Blómgerð

hálffyllt

Blómgun

einblómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

meðalsterkur

Aldin

-

Lauflitur

grágrænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgerð, RHF2

Bjarmarósir eru afkomendur bjarmarósar, Rosa alba. Flestar með mikið fyllt blóm, bleikar eða hvítar með grágrænu laufi og mjög sterkum ilmi. Þær voru mikið ræktaðar á 19. öld.  Bjarmarósir þrífast vel hérlendis í góðu skjóli.  Þær þola skugga part úr degi.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 3b

Skandínavíski kvarði: H7

Bjarmarós með hálffylltum, hvítum blómum. Eins og flestar aðrar antíkrósir blómstrar hún á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Kelur ekki mikið í góðu skjóli og blómgun því nokkuð örugg.

"Harðgerð rós. Blómstrar lítið ilmandi blómum frá lokum júlí. 2 m.á hæð. H.2.Ísl."

-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page