top of page

'Hippolyte'

sh. 'Souvenir de Kean'

Gallica rósir

Uppruni

Parmentier, Belgíu, fyrir 1840

Hæð

um 1 m

Blómlitur

purpurarauður - fjólublár

Blómgerð

fyllt

Blómgun

einblómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

daufur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þarf skjólríkan vaxtarstað, RHF3

Gallica rósir eru blendingar Rosa gallica sem vex villt í S-Evrópu. Þær mynda þétta runna, með frekar grófu, fagurgrænu laufi.  Blómin geta verið einföld eða mikið fyllt og litaskalinn er frá hvítum yfir í dökkrauða og fjólubláa liti. Sortir með einföldum blómum eru margar harðgerðari en þær sem eru með fylltum blómum.  Þær þurfa allar gott skjól.  

Skáldarósir eru blendingar af gallica rósum sem kenndar hafa verið við Rosa x francofurtana, en hún er blendingur Rosa gallica og Rosa cinnamomea. Það sem greinir þær frá öðrum gallica rósum er að þær eru heldur hávaxnari með grófgerðara laufi og margar heldur harðgerðari.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone:  4b

Runnarós með fylltum, purpurarauðum blómum, sem verða fjólublá með aldrinum. Þarf skjólgóðan, sólríkan vaxtarstað. Kelur yfirleitt eitthvað, mikið kal getur komið niður á blómgun þar sem hún blómgast á eldri greinar. Því ætti aðeins að snyrta burt kal.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page