top of page

'Merveille'

Gallica rósir

Uppruni

Rautio, Finnland 2008

Hæð

50 - 100 cm

Blómlitur

purpurarauður

Blómgerð

hálffyllt

Blómgun

einblómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

meðalsterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

takmörkuð reynsla, líklega RHF3

Gallica rósir eru blendingar Rosa gallica sem vex villt í S-Evrópu. Þær mynda þétta runna, með frekar grófu, fagurgrænu laufi.  Blómin geta verið einföld eða mikið fyllt og litaskalinn er frá hvítum yfir í dökkrauða og fjólubláa liti. Sortir með einföldum blómum eru margar harðgerðari en þær sem eru með fylltum blómum.  Þær þurfa allar gott skjól.  

Skáldarósir eru blendingar af gallica rósum sem kenndar hafa verið við Rosa x francofurtana, en hún er blendingur Rosa gallica og Rosa cinnamomea. Það sem greinir þær frá öðrum gallica rósum er að þær eru heldur hávaxnari með grófgerðara laufi og margar heldur harðgerðari.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone:  5

Skandínavíski kvarði:  H5

Runnarós með hálffylltum, purpurarauðum blómum. Þarf skjólgóðan, sólríkan vaxtarstað. Blómgast á eldri greinar og því ætti aðeins að snyrta burt kalkvisti til að klippa ekki í burtu blómvísa. 


Þessi rós var ræktuð í Finnlandi árið 2008 og því alls ekki antíkrós, en þar sem hún flokkast sem gallica rós, þá hef ég hana með hinum gallica rósunum.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page