top of page

'Olkkala'

Gallica rósir

Uppruni

fannst í Vihti, Finnlandi 1997

Rosa x francofurtana

Hæð

1 - 2 m

Blómlitur

bleikur

Blómgerð

einföld

Blómgun

einblómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

meðalsterkur

Aldin

rauðar nýpur

Lauflitur

grænn, gulir haustlitir

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

virðist harðgerð, líklega RHF2

Gallica rósir eru blendingar Rosa gallica sem vex villt í S-Evrópu. Þær mynda þétta runna, með frekar grófu, fagurgrænu laufi.  Blómin geta verið einföld eða mikið fyllt og litaskalinn er frá hvítum yfir í dökkrauða og fjólubláa liti. Sortir með einföldum blómum eru margar harðgerðari en þær sem eru með fylltum blómum.  Þær þurfa allar gott skjól.  

Skáldarósir eru blendingar af gallica rósum sem kenndar hafa verið við Rosa x francofurtana, en hún er blendingur Rosa gallica og Rosa cinnamomea. Það sem greinir þær frá öðrum gallica rósum er að þær eru heldur hávaxnari með grófgerðara laufi og margar heldur harðgerðari.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

Finnski kvarði: I-IV

Finnsk fundrós af óþekktum uppruna sem fannst árið 1997 við yfirgefna lestarteina nálægt Olkkala setri í S-Finnlandi. Talið er að henni hafi verið plantað þar einhverntíman á tímabilinu 1910-1930. 


Eins og flestar aðrar antíkrósir blómstrar hún á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Hún er sögð þroska rauðar nýpur og fá gula haustliti. 


Þessi rós er ein af gallica rósunum sem hafa verið kenndar við Rosa x francofurtana, sem er blendingur kanilrósar (Rosa cinnamomea ) og Rosa gallica.

"Finnsk Skáldarós. Vex vel, verður sennilega um 2 m á hæð. Ilmar vel, blómstrar í júlí. H.2.Ísl."

-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page