top of page

'Frühlingsduft'

sh. 'Spring Fragrance'

Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)

Uppruni

Kordes II, Þýskalandi, 1949

Hæð

ca. 1,5 m

Blómlitur

ferskjubleikur - bleikur

Blómgerð

hálffyllt

Blómgun

einblómstrandi, júní - ágúst

Ilmur

sterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þarf nokkuð skjólríkan vaxtarstað, takmörkuð reynsla

Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm.  Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm.  Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 5a

Skandínavíski kvarði: H5

Þyrnirósarblendingur með hálffylltum, ferskjubleikum-bleikum blómum. Hún blómstrar á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Þarf skjólgóðan, sólríkan stað. Blómin opnast ferskjubleik, verða svo meira bleik og fölna að lokum og verða næstum hvít. Blendingur þyrnirósar (frjógjafi) og terósarblendingsins 'Joanna Hill'.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page