top of page

'Mary Queen of Scots'

Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)

Uppruni

óþekktur

Hæð

1,5 - 2 m

Blómlitur

fölbleikur

Blómgerð

einföld

Blómgun

einblómstrandi, júní - ágúst

Ilmur

meðalsterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, sendinn

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð, líklega RHF1

Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm.  Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm.  Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 3b

Skandínavíski kvarði: H6

Þyrnirósarblendingur með einföldum, fölbleikum blómum með dekkri miðju. Hún blómstrar á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Þrífst best í sól og sendnum, vel framræstum jarðvegi. 


Hún er talin vera blendingur af Rosa x reversa, sem er náttúrulegur blendingur þyrnirósar og fjallarósar (Rosa pimpinellifolia x pendulina).

"Mjög harðgerð skosk þyrnirós sem blómstrar í lok júní , ilmar lítið, er um 1,8.m á hæð. H.1.Ísl."

-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009



Til er annar þyrnirósarblendingur með sama heiti, sem virðist ekki vera eins algengur í ræktun. Hann er með hálffylltum blómum með tvílitum krónublöðum; efra borðið er rauðbleikt og neðraborðið fölbleikt.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page