top of page

'Papula'

Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)

Uppruni

óþekktur, finnsk fundrós

þessi rós óx við Papula herragarðinn í Vyborg, í Rússlandi. Talið er að þýskur kennari hafi flutt hana þangað frá Þýskalandi á 19. öld og að dóttir hans hafi svo flutt hana með sér til Teiskola í Finnlandi.

Hæð

um 1 - 1,5 m

Blómlitur

fölbleikur

Blómgerð

hálffyllt

Blómgun

einblómstrandi, júní - ágúst

Ilmur

meðalsterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, sendinn

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

takmörkuð reynsla

Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm.  Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm.  Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

Finnski kvarði: I-VI

Þyrnirósarblendingur með hálffylltum, bleikum blómum.  Hún blómstrar á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Þrífst best í sól og sendnum, vel framræstum jarðvegi. 

"Finnsk þyrnirós óreynd sögð mjög harðgerð í Finnlandi. Ilmar ágætlega, blómstrar um mánaðamót júní - júlí. Er sögð verða meira en 2.m.á hæð."

- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page