top of page
Mýrastigi

'Ristinummi'

Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)

Uppruni

óþekktur, finnsk fundrós sem fannst við lestarstöðina Ristinummi í Järvenpää

talin vera blendingur þyrnirósar og ígulrósar

Hæð

um 1,5 m

Blómlitur

fölbleikur

Blómgerð

einföld

Blómgun

einblómstrandi, júní - júlí, stundum lítillega aftur að hausti

Ilmur

sterkur

Aldin

rauðbrúnar nýpur

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

sendinn, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgerð, líklega RHF2

Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm.  Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm.  Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

Finnski kvarði: I-V (allt Finnland)

Þyrnirósar og ígulrósarblendingur með mjög stórum, einföldum, bleikum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Blómin eru nokkuð regnþolin. Þroskar rauðbrúnar nýpur og fær rauðleita haustliti. Á það til að blómstra lítillega aftur að hausti. Mjög harðgerð rós.


Finnsk fundrós sem fannst við lestarstöðina Ristinummi í Järvenpää í Finnlandi.


 


Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

Garðaflóra slf.
kt: 550421-1430

vsk. nr.: 140886
Suðurgötu 70, 220 Hafnarfirði

S: 780-8875

gardaflora@gardaflora.is

Opnunartími:
 

Eingöngu vefverslun

Afhending sóttra pantana

eftir samkomulagi

Opnunartími garðplöntusölunnar birtist hér á síðunni og á Facebook síðu Garðaflóru

  • Facebook App Icon
  • Instagram
  • bluesky-seeklogo
bottom of page