top of page

'Stanwell Perpetual'

Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)

Uppruni

Lee, Bretlandi, fyrir 1821

'Quatre Saisons' x óþekkt þyrnirós (Rosa pimpinellifolia)

Hæð

1 m

Blómlitur

fölbleikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júní - ágúst

Ilmur

meðal sterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

sendinn, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þarf frekar skjólgóðan stað, RHF3

Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm.  Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm.  Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 3b

Skandínavíski kvarði:  H6

Þyrnirósarblendingur með fylltum, fölbleikum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. 

"Harðgerð og mjög blómsæl rós sem blómstrar frá miðjum júlí og út ágúst. Ilmur er fremur lítill. Hæð um 1.m. H.2.Ísl."

- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbær, 2009

 


Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page