top of page

'Suzanne'

Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)

Uppruni

Skinner, Kanada, 1950

fræplanta af huldurós (Rosa laxa) x þyrnirós (Rosa pimpinellifolia)

Hæð

1 - 1,5 m

Blómlitur

fölbleikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

einblómstrandi, júní - ágúst

Ilmur

daufur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

sendinn, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgerð, líklega RHF2

Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm.  Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm.  Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 2b

Skandínavíski kvarði:  H7

Þyrnirósarblendingur með fylltum, fölbleikum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Blómstrar á eldri greinar og snyrting ætti því að takmarkast við að klippa burt kal og gamlar greinar. Blóm viðkvæm fyrir rigningu.

"Harðgerð þyrnirós. Blómstrar um mánaðamót júní - júlí. 1,5 m á hæð. Ilmar lítið. H.2.Ísl."

- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbær, 2009

 


Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page