'Williams Double Yellow'
sh. 'Double Yellow'; 'Namdalsrosen'; 'Kaisaniemi'; 'Jaune de William'
Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)
Uppruni
Williams, Bretlandi, 1820
Þyrnirós (Rosa pimpinellifolia) x gullrós (Rosa foetida)
Hæð
1 - 1,5 m
Blómlitur
gulur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
einblómstrandi, júní - ágúst
Ilmur
meðalsterkur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
sendinn, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerð, líklega RHF1
Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm. Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm. Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 6b
Skandínavíski kvarði: H7
Þyrnirósarblendingur með fylltum, gulum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Blómstrar á eldri greinar og snyrting ætti því að takmarkast við að klippa burt kal og gamlar greinar.
"Norsk þyrnirós, mjög harðgerð. Blómstrar í júlí, ilmandi blóm. Verður um 1,5.m.á hæð. H.1.Ísl."
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009