top of page

'Dr. Eckener'

sh. 'Docteur Eckener'

Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)

Uppruni

Vincenz Berger, Þýskalandi, 1928


terósarblendingurinn 'Golden Emblem
' × ónefndur blendingur af ígulrós, Rosa rugosa

Hæð

1 m

Blómlitur

ferskjugulur - bleikur

Blómgerð

hálffyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

sterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

frekar viðkvæm, þarf skjólgóðan, sólríkan vaxtarstað

Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur.  Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.


Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum.  Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 5b

Skandínavíski kvarði: H4


Ígulrósarblendingur með hálffylltum, ferskjugulum - bleikum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar og kal. Kelur töluvert. 

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page