top of page

'Guðbjörg'

Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)

Uppruni

Jóhann Pálsson, Ísland

Rosa rugosa ‘Logafold’ og Rosa kamtschatica

Hæð

um 1,5 m

Blómlitur

rauðbleikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

meðalsterkur

Aldin

rauðar nýpur

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð

Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur.  Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.


Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum.  Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

Íslenskur ígulrósarblendingur með fylltum, rauðbleikum blómum. Hún þroskar rauðar nýpur og fær fallega rauða og gula haustliti.



Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page