top of page

'Marie Bugnet'

Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)

Uppruni

Georges Bugnet, Kanada, um 1955

'Betty Bugnet' x 'F. J. Grootendorst'

Hæð

um 1 m

Blómlitur

hvítur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - september

Ilmur

sterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgerð, RHF2

Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur.  Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.


Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum.  Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 2a

Skandínavíski kvarði: H7


Ígulrósarblendingur með fylltum, hvítum blómum með rauðbleikum jöðrum í fyrstu. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar.

"Kanadisk Ígulrós. Sögð mjög harðgerð. Ilmar mikið, blóm síðsumars:"

 - Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009


Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page