top of page

'Martin Frobisher'

Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)

Uppruni

Svejda, Kanada, 1961

'Schneezwerg' x óþekkt

Hæð

1,5 - 1,8 m

Blómlitur

ljósbleikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - september

Ilmur

meðalsterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgerð, RHF2

Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur.  Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.


Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum.  Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 2b

Skandínavíski kvarði: H6


Ígulrósarblendingur með fylltum, bleikum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi og þokkalega góðu skjóli.  Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar. 


Þetta er ein af þeim rósum sem tilheyra kanadísku Explorer-seríunni. Martin Frobisher var breskur landkönnuður sem fór í þrjá leiðangra til nýja heimsins í leit að norðausturleiðinni yfir til Asíu, sem allir vildu finna og er Frobisherflói nefndur eftir honum.


Explorer-serían er afrakstur ræktunarverkefnis á vegum kanadíska landbúnaðarráðuneytisins sem miðaði að því að rækta fram harðgerðar, heilbrigðar rósir sem þola kanadískar frosthörkur. Dr. Felicitas Svejdas hafði umsjón með verkefninu og ræktaði hún fram fjölda harðgerðra rósa á árunum 1961-1999, sem margar hafa reynst afar vel hér á landi. 


"Harðgerð Kanadisk Ígulrós miðað við skjólsælan stað. Blómstrar í júlí og ilmar mikið 1,5.m. á hæð. H.2.Ísl."

- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page