'Polarsonne'
sh. 'Polar Sun'
Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)
Uppruni
óþekktur, frá Rússlandi, markaðssett af Strobel, Þýskalandi, 1991
Hæð
um 1,5 - 1,8 m
Blómlitur
bleikur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
lotublómstrandi, júlí - september
Ilmur
sterkur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
nokkuð harðgerð, líklega RHF2
Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur. Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.
Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum. Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 5b
Ígulrósarblendingur með fylltum, bleikum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar.
Strobel BKN í Þýskalandi fékk eintak af rósinni frá Rússlandi og markaðssetti hana undir heitinu 'Polarsonne' í Þýskalandi 1991.
"Þýsk Ígulrós. Óreynd,blóm í júlí. Mikið ilmandi."
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009