'Schneezwerg'
sh. 'Snow Dwarf'
Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)
Uppruni
Peter Lambert, Þýskalandi, 1911
ónefnd fræplanta x ígulrós, Rosa rugosa
Hæð
um 1,2 - 1,8 m
Blómlitur
hvítur
Blómgerð
hálffyllt
Blómgun
einblómstrandi, júlí - ágúst, getur blómstrað lítillega að hausti
Ilmur
sterkur
Aldin
rauðar nýpur
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
nokkuð harðgerð, líklega RHF2
Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur. Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.
Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum. Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 3a
Skandinavíski kvarði: H6
Ígulrósarblendingur með hálffylltum, hvítum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar.
"Rósa Rugósa, harðgerð, blómviljug, um 1,5 m á hæð. H.2. Ísl. Blómstrar í júlí, ilmar mikið."
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009