top of page

'Skotta'

Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)

Uppruni

Grasagarður Reykjavíkur, um 1965

Rosa blanda 'Betty Bland´ og líklega Rosa rugosa

Hæð

um 1,5 m

Blómlitur

bleikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - september

Ilmur

sterkur

Aldin

rauðar nýpur

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð, líklega RHF1

Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur.  Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.


Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum.  Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

Ígulrósarblendingur með fylltum, bleikum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar. 


Þessi rós var ræktuð í Grasagarði Reykjavíkur af fræi frá grasagarðinum í Wageningen, Hollandi skv. upplýsingum á vef Yndisgróðurs.  Plöntur ræktaðar af rósinni sem óx í Grasagarðinum fóru í dreifingu einhverntíma eftir 1980 og voru seldar undir heitinu 'Wasagaming', áður en ljóst var að um nýtt yrki væri að ræða. 

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page