top of page

'Splendens'

sh. 'Frankfurt'; Valamonruusu; Valamo-rose

Skáldarós

Gallica rósir

Uppruni

óþekktur, fyrir 1583

Rosa x francofurtana

Hæð

1,5 - 2 m

Blómlitur

rauðbleikur

Blómgerð

einföld

Blómgun

einblómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

meðalsterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgerð, RHF2

Gallica rósir eru blendingar Rosa gallica sem vex villt í S-Evrópu. Þær mynda þétta runna, með frekar grófu, fagurgrænu laufi.  Blómin geta verið einföld eða mikið fyllt og litaskalinn er frá hvítum yfir í dökkrauða og fjólubláa liti. Sortir með einföldum blómum eru margar harðgerðari en þær sem eru með fylltum blómum.  Þær þurfa allar gott skjól.  

Skáldarósir eru blendingar af gallica rósum sem kenndar hafa verið við Rosa x francofurtana, en hún er blendingur Rosa gallica og Rosa cinnamomea. Það sem greinir þær frá öðrum gallica rósum er að þær eru heldur hávaxnari með grófgerðara laufi og margar heldur harðgerðari.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone:  3

Skandínavíski kvarði:  H7

Runnarós með einföldum, rauðbleikum blómum. Blómstrar á eldri greinar og því ætti klipping að takmarkast við að snyrta burt kal. 


Þessi rós er ein af gallica rósunum sem hafa verið kenndar við Rosa x francofurtana, sem er blendingur kanilrósar (Rosa cinnamomea) og Rosa gallica.

"Harðgerð og blómsæl, ilmandi blóm í júlí, 2 m á hæð. H.2. Ísl."

-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page