top of page

'Bright as a Button'

sh. 'Eyes on You' ; 'Peace and Love' ; 'Raspberry Kiss'

Klasarósir (Floribundas)

Uppruni

Christopher C. Warner, Bretlandi, fyrir 2006

'Summer Wine' (klifurrós) x ónefnd fræplanta  [('Tigris' x 'Baby Love') x 'SCRIVbell']

Hæð

60 cm

Blómlitur

bleikur með dökkri miðju

Blómgerð

einföld

Blómgun

síblómstrandi, júlí - september

Ilmur

daufur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

frekar viðkvæm

Floribunda klasarósirnar urðu til með víxlfrjóvgun terósablendinga og polyantha klasarósa. Þær eru hærri, með stærri blóm sem líkjast terósablendingum, en blómin eru í klösum.  Klasarósirnar eru e.t.v. örlítið harðgerðari en terósablendingarnir, en eru þó frekar viðkvæmar hér og þurfa vetrarskýlingu og besta stað í garðinum.

Erlendir harðgerðiskvarðar:



Klasarós með einföldum, bleikum blómum með dekkri miðju. Getur lifað úti með dekri og vetrarskýlingu, en blómgun er þá ótrygg.  Nýtur sín líklega best í gróðurhúsi.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page