top of page

'Queen Elizabeth'

sh. 'Queen of England'

Klasarósir (Floribundas)

Uppruni

Dr. Walter E. Lammerts, Bandaríkjunum, 1951

'Charlotte Armstrong' (terósablendingur) x 'Floradora' (floribunda)

Hæð

60 - 120 cm

Blómlitur

bleikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

síblómstrandi, júlí - september

Ilmur

daufur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

frekar viðkvæm

Floribunda klasarósirnar urðu til með víxlfrjóvgun terósablendinga og polyantha klasarósa. Þær eru hærri, með stærri blóm sem líkjast terósablendingum, en blómin eru í klösum.  Klasarósirnar eru e.t.v. örlítið harðgerðari en terósablendingarnir, en eru þó frekar viðkvæmar hér og þurfa vetrarskýlingu og besta stað í garðinum.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 5b

Skandinavíski kvarði: H5

Klasarós með klösum af stórum, fylltum, bleikum blómum. Frekar viðkvæm rós sem þarf helst að vaxa í gróðurhúsi.


Fyrsta grandiflora rósin, sem er flokkur sem er eingöngu viðurkenndur í Bandaríkjunum. Blómin eru jafnstór og hjá terósablendingum, en eru í fáblóma klösum.


Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page