![]() |
---|
'Peace'
sh. 'Gloria Dei' ; 'Madame Antoine Meilland'
Terósablendingar (Hybrid Tea)
Uppruni
Francis Meilland, Frakklandi, 1935
fræplanta af [George Dickson × Souvenir de Claudius Pernet] × [Joanna Hill × Charles P. Kilham] x Margaret McGredy
Hæð
60 - 90 cm
Blómlitur
gulur - bleikur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
síblómstrandi, júlí - september
Ilmur
sterkur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
frekar viðkvæm
Terósablendingar urðu til við kynblöndun milli hinna viðkvæmu terósa og harðgerðari síblómstrandi blendinga. Útkoman varð glæsilegar plöntur sem voru harðgerðar um stærstan hluta vestur- og mið-Evrópu, síblómstrandi með stórum, fagurlega löguðum blómum í öllum litaskalanum að bláum undanskildum. Þær eru enn í dag vinsælustu garðrósirnar á heimsvísu. Því miður eru fæstar nógu harðgerðar til að þrífast vel hérlendis, þó nokkrar undantekningar séu þar á, en þær þurfa nokkuð nostur til að blómstra vel.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 5b
Skandínavíski kvarði: H5
Terósarblendingur með fylltum, gulum blómum með bleikum jöðrum. Frekar viðkvæm og nýtur sín best í gróðurhúsi. Blómin opnast gul með bleikum jöðrum, en fölna svo í fölgulan og fölbleikan. Það fer eftir hitastigi hversu áberandi bleiki liturinn er, ef það er svalt verða blómin meira gul.
Heimsins frægasta rós. Hún setti ný viðmið í rósarækt og vinsældir rósa á 6. og 7. áratug síðustu aldar má að stórum hlut rekja til þessarar rósar.