'Troika'
sh. 'Royal Dane' ; 'Adele Duttweiler'
Terósablendingar (Hybrid Tea)
Uppruni
Poulsen, Danmörku, 1971
fræplanta af ['Tropicana' x ('Baccará'x'Princesse Astrid')] x 'Hanne'
Hæð
60 - 90 cm
Blómlitur
ferskjugulur - bleikur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
síblómstrandi, júlí - september
Ilmur
sterkur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
frekar viðkvæm
Terósablendingar urðu til við kynblöndun milli hinna viðkvæmu terósa og harðgerðari síblómstrandi blendinga. Útkoman varð glæsilegar plöntur sem voru harðgerðar um stærstan hluta vestur- og mið-Evrópu, síblómstrandi með stórum, fagurlega löguðum blómum í öllum litaskalanum að bláum undanskildum. Þær eru enn í dag vinsælustu garðrósirnar á heimsvísu. Því miður eru fæstar nógu harðgerðar til að þrífast vel hérlendis, þó nokkrar undantekningar séu þar á, en þær þurfa nokkuð nostur til að blómstra vel.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 6b
Skandínavíski kvarði: H4
Terósarblendingur með ferskjugulum - bleikum blómum. Er frekar viðkvæm og þarf vetrarskýlingu og hlýjan, sólríkan vaxtarstað. Nýtur sín best í gróðurhúsi.