top of page

'Dornröschen'

sh. 'Belle au Bois Dormant' ; 'Sleeping Beauty'

Dornrós

Nútíma runnarósir (Modern Shrub)

Uppruni

Reimer Kordes, Þýskalandi, 1960

'Pike's Peak' x 'Ballet' (terósablendingur)

Hæð

60 - 90 cm

Blómlitur

bleikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

síblómstrandi, júlí - september

Ilmur

sterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þrífst vel við rétt skilyrði

Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir.  Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður.  Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér.  Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.


Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir.   Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning.  Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 5b

Skandinavíski kvarði: H5

Nútíma runnarós með stórum, fylltum, bleikum blómum sem líkjast mjög blómum terósablendinga, enda er annað foreldrið terósablendingurinn 'Ballet'.  Hún getur vel þrifist og blómstrað utandyra í góðu skjóli og nægri sól. Vetrarskýli er þó æskilegt.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page