'J. P. Connell'
Nútíma runnarósir (Modern Shrub)
Uppruni
Dr. Felicitas Svejda, Kanada, 1973
Arthur Bell (Floribunda) × fræplanta af Von Schar
Hæð
um 1 m
Blómlitur
kremhvítur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
lotublómstrandi, júlí - september
Ilmur
daufur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
nokkuð harðgerð, HRF - 3
Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir. Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður. Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér. Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.
Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir. Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning. Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 2b
Skandínavíski kvarði: H6
Nútíma runnarós úr kanadísku Explorer-seríunni, ræktuð af Dr. Felicitas Svejda. Hún blómstrar fylltum, kremhvítum blómum með fölgulu skini í nýútsprungnum blómum.
J. P. Connell er eina rósin í Explorer-seríunni sem ekki er nefnd eftir kanadískum landkönnuði. J. P. Connell (1926-2012) var aðstoðar landbúnaðarráðherra í Kanada á níunda áratug síðustu aldar.
"Kanadisk rós, óreynd. Blómstrar í júlí, ilmar lítið.""
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009