top of page

'Sekel'

Nútíma runnarósir (Modern Shrub)

Uppruni

Arne Lundstad, Noregi, 1984

'Lichterloh' (moskusrósablendingur) x 'Zitronenfalter' (nútíma runnarós)

Hæð

um 60cm

Blómlitur

gulur sem roðnar með tímanum

Blómgerð

hálffyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - september

Ilmur

sterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

frekar viðkvæm

Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir.  Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður.  Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér.  Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.


Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir.   Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning.  Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 6b

Skandinavíski kvarði: H4

Nútíma runnarós með hálffylltum, gulum blómum sem roðna með tímanum.  Bleiki liturinn verður dekkri eftir því sem lofthitinn er hærri og verður rauðbleikur í mikilli sól og hita. Hún þarf sólríkan vaxtarstað í góðu skjóli og vetrarskýlingu. Frekar viðkvæm.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page