Crocus chrysanthus 'Blue Pearl' (10 stk.)
Tryggðakrókus
'Blue Pearl' er afbrigði af tryggðakrókus sem blómstrar tvílitum, ljósbláum og hvítum blómum.
10 stk. í pakka.
Ræktunarleiðbeiningar
Krókusar eru á meðal fyrstu blómlauka til að blómstra á vorin, oft í lok mars eða í byrjun apríl. Blómin opnast bara í sólskini, svo til þess að þeir njóti sín vel þurfa þeir sólríkan vaxtarstað og vel framræstan jarðveg. Hnýðin eru gróðursett á ca. 10 cm dýpi.