Lewisia longipetala 'Little Peach'
Fjallablaðka
Fjallablaðka er steinhæðaplanta sem þrífst best á sólríkum stað í sendnum, vel framræstum jarðvegi. Best er að rækta hana í pottum sunnanlands og geyma þá yfir vetrarmánuðina í skjóli þar sem ekki rignir ofan í þá.
'Little Peach' er afbrigði sem blómstrar ferskjugulum - bleikum blómum.
Sáningartími:
janúar-febrúar
Fræið rétt hulið, kælt í 4 vikur og síðan haft við stofuhita fram að spírun.
25 fræ í pakka