top of page
Narcissus 'Androcles'

Narcissus 'Androcles'

Hátíðarlilja (Fyllt)

 

'Androcles' blómstrar stórum hvítum, fylltum blómum.

Verður um 40-60 cm á hæð.

 

Áætlað verð:

6 stk á 1230 kr.

50 stk á 8060 kr.

 

Hægt er að forpanta 6 stk pakka með því að greiða tilgreint staðfestingargjald. Reikningur fyrir eftirstöðvum verður svo sendur út fyrir afhendingu í september.

 

ATH. 50 stk pakka þarf að sérpanta með því að senda tölvupóst á gardaflora@gardaflora.is

 

  • Ræktunarleiðbeiningar

    Hátíðarliljur (páskaliljur) eru fjölærar og í flestum tilvikum harðgerðar. Þær vaxa best í frjóum, vel framræstum jarðvegi í sól eða hálfskugga. Laukarnir eru gróðursettir á þeirri dýpt sem samsvarar því að moldarlagið yfir laukunum sé tvöföld hæð laukanna.  Eftir blómgun eru blómstönglarnir klipptir af, en laufið látið vera þar til það fölnar. Þannig safnast öll orkan í laukinn í stað þess að fara í fræmyndun. Þar sem laufið er ekki mjög fallegt á meðan það fölnar, er best að planta laukunum inn á milli fjölæringa sem hylja laufið.

PriceFrom 600kr
VAT Included

Related Products

bottom of page