top of page

Rosa foetida 'Bicolor'

Gullrós

Gullrósir

Uppruni

óþekktur, fyrir 1590,

Sport (stökkbreyting) af gullrós, R. foetida.

Hæð

allt að 1,5 - 1,8 m

Blómlitur

appelsínurauður, gulur

Blómgerð

einföld

Blómgun

einblómstrandi, júlí

Ilmur

daufur

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þarf gott skjól, RHF3

Villirósir eru, eins og nafnið bendir til, villtar tegundir og sortir af þeim sem eru ekki mikið kynblandaðar. Það eru um 150 villtar tegundir rósa sem vaxa á norðurhveli jarðar og geta verið mjög breytilegar innan tegundar. Þessar rósir eru formæður allra garðrósa. 


Gullrósir eru blendingar af gullrós, R. foetida.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 3

Einblómstrandi runnarós með tvílitum blómum. Efra borð krónublaða er appelsínurautt og neðra borðið gult. Kann best við sig í hlýju og sól, köld rigningasumur eiga því illa við hana. Frekar treg til að blómstra og fær alltaf sveppasýkingu í lauf (black spot).

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page