top of page

Rosa pimpinellifolia 'Double Blush'

sh. 'Double Blush Burnet'

Þyrnirósir

Uppruni

óþekktur, fyrir 1808

Hæð

1 - 1,5 m

Blómlitur

fölbleikur

Blómgerð

hálffyllt

Blómgun

einblómstrandi, júní - ágúst

Ilmur

daufur

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgerð, RHF2

Villirósir eru, eins og nafnið bendir til, villtar tegundir og sortir af þeim sem eru ekki mikið kynblandaðar. Það eru um 150 villtar tegundir rósa sem vaxa á norðurhveli jarðar og geta verið mjög breytilegar innan tegundar. Þessar rósir eru formæður allra garðrósa.


Þyrnirósir eru lítið kynbætt afbrigði af þyrnirós, Rosa pimpinellifolia.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

Skandínavíski kvarði: H6

Þetta heiti er notað yfir nokkrar líkar sortir með hálffylltum eða fylltum, fölbleikum blómum. Hún blómstrar á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu.

"Harðgerð, blómsæl þyrnirós sem blómstrar í júlí. Ilmur fremur lítill, 1,5 m á hæð. H.2.Ísl."

- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page