top of page

Rosa villosa 'Hurdal'

Hurdalsrós

Villirósir

Uppruni

Talin hafa borist til Hurdalen í Noregi frá Giessen í S-Þýskalandi um 1800. Varð fljótt útbreidd í Noregi, en hvarf í Þýskalandi.

Hæð

2 - 3 m

Blómlitur

bleikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

einblómstrandi, lok júní - júlí

Ilmur

daufur

Lauflitur

grágrænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, rakur, frjór, lífefnaríkur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgerð, RHF2

Villirósir eru, eins og nafnið bendir til, villtar tegundir og sortir af þeim sem eru ekki mikið kynblandaðar. Það eru um 150 villtar tegundir rósa sem vaxa á norðurhveli jarðar og geta verið mjög breytilegar innan tegundar. Þessar rósir eru formæður allra garðrósa.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 6b

Mjög hávaxin runnarós með fylltum, bleikum blómum. Var talin vera bjarmarós (Alba), en er nú talin vera blendingur af silkirós (Rosa villosa), sem vex villt í Evrópu frá Skandinavíu og Bretlandi, suður til Spánar og austur til Kákasusfjalla.

"Harðgerð norsk Bjarmarós. Blómviljug, blómstrar í júlí, ilmar vel,stórvaxin á hæð og breidd. Hæð um 2,5 m, sumsstaðar talsvert hærri. H.2.Ísl."

- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page