Rosa xanthina
Glóðarrós
Villirósir
Uppruni
vex villt í N-Kína og Kóreu. Flutt til Evrópu 1907
Hæð
um 1,5 m
Blómlitur
fölgulur
Blómgerð
einföld
Blómgun
einblómstrandi, lok júní - júlí
Ilmur
daufur
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, sendinn, rýr
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
nokkuð harðgerð, RHF1
Villirósir eru, eins og nafnið bendir til, villtar tegundir og sortir af þeim sem eru ekki mikið kynblandaðar. Það eru um 150 villtar tegundir rósa sem vaxa á norðurhveli jarðar og geta verið mjög breytilegar innan tegundar. Þessar rósir eru formæður allra garðrósa.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 6b
Runnarós með einföldum, fölgulum blómum sem þrífst best á sólríkum stað í frekar rýrum, sendnum jarðvegi.
"Mjög harðgerð blómsæl rós sem vill sendinn snauðan jarðveg. 1,5.m. á hæð. Ilmar fremur lítið, blóm um mánaðamót júní - júli. H.1.Ísl."
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009