![]() |
|---|
'Louise Bugnet'
Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)
Uppruni
George Bugnet, Kanada, fyrir 1960
'Martha Bugnet' x 'Thérèse Bugnet'
Hæð
um 1 - 1,5 m
Blómlitur
hvítur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
lotublómstrandi, júlí - september
Ilmur
meðalsterkur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
nokkuð harðgerð, RHF2
Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur. Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.
Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum. Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 2b
Skandínavíski kvarði: H7
Ígulrósarblendingur með fylltum, hvítum blómum með rauðbleikum jöðrum í fyrstu. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar.
"Afar harðgerð og falleg rós frá Kanada. H.2. Bl ómstrar í júlí. 1,5 m á hæð og ilmar mikið."
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

