top of page

'Ruustinna'

sh. 'Sanna'

Gallica rósir

Uppruni

fannst í Khumo, Finnlandi 1998

Rosa x francofurtana

Hæð

1,5 - 2 m

Blómlitur

rósbleikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

einblómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

meðalsterkur, dofnar

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

virðist harðgerð, líklega RHF2

Gallica rósir eru blendingar Rosa gallica sem vex villt í S-Evrópu. Þær mynda þétta runna, með frekar grófu, fagurgrænu laufi.  Blómin geta verið einföld eða mikið fyllt og litaskalinn er frá hvítum yfir í dökkrauða og fjólubláa liti. Sortir með einföldum blómum eru margar harðgerðari en þær sem eru með fylltum blómum.  Þær þurfa allar gott skjól.  

Skáldarósir eru blendingar af gallica rósum sem kenndar hafa verið við Rosa x francofurtana, en hún er blendingur Rosa gallica og Rosa cinnamomea. Það sem greinir þær frá öðrum gallica rósum er að þær eru heldur hávaxnari með grófgerðara laufi og margar heldur harðgerðari.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

Finnski kvarði: I-IV

Finnsk fundrós af óþekktum uppruna sem fannst árið 1998 í Kuhmo í Finnlandi. Hún var áður nefnd 'Sanna'. 


Eins og flestar aðrar antíkrósir blómstrar hún á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. 


Þessi rós er ein af gallica rósunum sem hafa verið kenndar við Rosa x francofurtana, sem er blendingur kanilrósar (Rosa cinnamomea) og Rosa gallica.

 "Harðgerð finnsk rós, blómstrar í júlí ilmandi blómum. 1,5.m á hæð. H.2. Ísl."

-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page