top of page
Marble Surface
Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Camassia - Indíánaliljur
 

Indíánaliljur, Camassia, er ættkvísl fjögurra tegunda laukplantna í aspasætt, Asperigaceae, sem allar eiga heimkynni í vestanverðri N-Ameríku. Laukar ætililju, Camassia quamash, voru mikilvæg fæða frumbyggja og er nafn ættkvíslarinnar dregið af því.

Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Chionodoxa - Snæstjörnur

Snæstjörnur, Chionodoxa, er ættkvísl 6 tegunda laukplantna af aspasætt, Asparagaceae, með heimkynni í fjalllendi við austanvert Miðjarðarhaf.

Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Colchicum - Eiturlijur

Eiturliljur, Colchicum, er ættkvísl í eiturliljuætt, Colchicaceae, sem inniheldur um 160 tegundir fjölærra hnýðisplantna sem eiga heimkynni um vestanverða Asíu, Evrópu og suður eftir austurströnd Afríku. Eins og nafn ættkvíslarinnar ber með sér eru þær eitraðar, en plöntur ættkvíslarinnar innihalda efnið colchicin sem hefur lyfjafræðilega virkni gegn þvagsýrugigt. Megineinkenni ættkvíslarinnar er að blómfrævan er neðanjarðar og vaxa blómin upp á undan laufblöðunum, oft síðsumars eða að hausti, en laufblöðin að vori.

Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Crocus - Krókusar

Krókusar, Crocus, er nokkuð stór ættkvísl um 90 tegunda í sverðliljuætt, Iridaceae. Þeir eiga heimkynni í Evrópu, Asíu og Afríku. Fjöldi kynblendinga er í ræktun í görðum.

Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Fritillaria - Keisaraliljur

Keisaraliljur, Fritillaria, er ættkvísl um 120 laukplantna sem tilheyra liljuætt, Liliaceae. Ættkvíslin hefur stórt útbreiðslusvæði um norðurhvel jarðar.

​​

Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Galanthus - Vetrargosar

Vetrargosar, Galanthus, er ættkvísl um 20 tegunda laukplantna í páskaliljuætt, Amaryllidaceae, með heimkynni í Evrópu og Mið-Austurlöndum. 

​​​

Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Gladiolus - Jómfrúrliljur

Jómfrúrliljur, Gladiolus, er ættkvísl um 150 tegunda af sverðliljuætt, Iridaceae. Flestar tegundanna eiga heimkynni í S-Afríku, en nokkrar tegundir vaxa í S-Evrópu og Asíu. Flestar jómfrúrlijur sem ræktaðar eru í görðum eru kynblendingar, sem ræktaðir eru sem vorlaukar hérlendis, þ.e. hnýði eru gróðursett að vori og forræktuð inni. Þó eru nokkrar tegundir góðar garðplöntur og a.m.k. ein þeirra, stelpulilja, er fjölær hér.​​​

​​

Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Hyacinthoides - Klukkuliljur

Hyacinthoides er ættkvísl 11 tegunda í aspasætt, Asparagaceae, sem allar eiga heimkynni við botn MIðjarðarhafs að einni undanskilinni, lotklukkulilju, sem vex víða um V-Evrópu. 

​​

​​

Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Hyacinthus - Goðaliljur

Goðaliljur, Hyacinthus, er lítil ættkvísl í aspasætt, Asparagaceae. Allar tegundir ættkvíslarinnar eiga heimkynni við botn Miðjarðarhafs. 

​​

Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Iris - Írisir

Írisir, Iris, er stór ættkvísl í sverðliljuætt, Iridaceae, með hátt í 300 tegundir sem vaxa víða um norðurhvel jarðar. Ættkvíslin skiptist í plöntur sem vaxa af jarðstönglum, sem fjallað er um með fjölærum plöntum og plöntur sem vaxa upp af laukum. Laukplöntunar vaxa á þurrum svæðum eins og margir aðrir haustlaukar og blómstra að vori, en liggja svo í dvala yfir sumarið.

​​​​​

Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Leucojum - Snæklukkur

Snæklukkur, Leucojum, er lítil ættkvísl tveggja tegunda í páskaliljuætt, Amaryllidaceae, sem báðar eiga heimkynni í Evrasíu.

​​​​​​​

Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Muscari - Perluliljur

Perluliljur, Muscari, er ættkvísl um 40 tegunda í aspasætt, Asparagaceae, með heimkynni í Evrasíu og N-Afríku.

​​

Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Narcissus - Páskaliljur

Páskaliljur (hátíðaliljur), Narcissus, er ættkvísl um 50 tegunda í páskaliljuætt, Amaryllidaceae, sem á heimkynni í SV-Evrópu og N-Afríku, með mestum tegundafjölda á Íberíuskaga. Blóm páskalilja eru mjög einkennandi, með sex blómhlífarblöðum og hjákrónu sem oft er í öðrum lit. Páskaliljum er skipt í hópa eftir blómgerð og ræður stærð blóma og gerð hjákrónunnar þar mestu um.  Fjöldi kynblendinga er í ræktun í görðum.

Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Puschkinia - Postulínslilja

Postulínsliljur, Puschkinia, er lítil ættkvísl þriggja tegunda í aspasætt, Asparagaceae. Þær vaxa villtar í Kákasusfjöllum og Mið-Austurlöndum.

​​​​​​​​​

Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Scilla - Stjörnuliljur

Snæstjörnur, Scilla, er ættkvísl um 80 tegunda í aspasætt, Asparagaceae, undirætt Scilloideae. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar nær yfir Evrópu, Afríku og Mið-Austurlönd.

​​​​​​​​​

Acaena saccaticupula 'Blue Haze'
Tulipa - Túlipanar

Túlipanar, Tulipa, er ættkvísl í liljuætt, Liliaceae. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar er frá Miðjarðarhafssvæðinu til NV-Kina. Fjöldi kynblendinga er í ræktun í görðum.

Marble Surface
bottom of page