top of page

'John Davis'

Nútíma runnarósir (Modern Shrub)

Uppruni

Dr. Felicitas Svejda, Kanada, fyrir 1977

ónefnd fræplanta af R. kordesii (L49) x óþekkt

Hæð

um 1,8 m

Blómlitur

bleikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - september

Ilmur

daufur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgerð, líklega HRF - 3

Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir.  Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður.  Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér.  Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.


Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir.   Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning.  Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 2b

Skandínavíski kvarði: H6

Nútíma runnarós úr kanadísku Explorer-seríunni, ræktuð af Dr. Felicitas Svejda. Hún blómstrar fylltum, bleikum blómum sem fölna með aldrinum.


John Davis var einn helsti landkönnuður Elísabetar I Englandsdrottningar og leiddi nokkra leiðangra í leit að NV leiðinni norður fyrir Ameríku til Asíu, sem Englendingum var mjög í mun að finna.

"Ágætlega harðgerð rós, um 70 cm á hæð, kanadísk að uppruna. Blómstrar í ágúst snemma ,skiftir skemmtilega litum eftir veðurfari, talsverður ilmur. Þarf skjól. H.3.Ísl."

- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page