top of page

'Prairie Dawn'

Nútíma runnarósir (Modern Shrub)

Uppruni

H. F. Harp, Kanada, 1956

'Prairie Youth' x ('Ross Rambler' x ('Dr. W. van Fleet' x Rosa pimpinellifolia var. altaica))

Hæð

um 2 m

Blómlitur

bleikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

daufur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgerð, RHF 2

Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir.  Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður.  Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér.  Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.


Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir.   Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning.  Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 3b

Skandinavíski kvarði: H6

Nútíma runnarós með fylltum, bleikum blómum.  Nokkuð harðgerð rós, en verður fallegust í góðu skjóli og sól. Getur náð 2 m hæð.

"Harðgerð nútímarós, hefur staðið sig vel í þrettán ár. Blómstrar mikið og lengi frá júlílokum og frameftir ágúst,lítill ilmur. Hæð um 2 m. H.2.Ísl".

  - Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page