top of page

Allium insubricum

Morgunlaukur

Laukætt

Alliaceae

Height

lágvaxinn, um 30 cm

Flower color

purpurableikur

Flowering

júlí

Leaf color

grænn

Lighting conditions

sól - hálfskuggi

Soil

vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Toughness

harðgerður

Homecoming

N-Ítalía

Ættkvíslin Allium, laukar, tilheyrir laukætt, Alliaceae. Hún inniheldur ekki bara matlaukana sem við þekkjum, heldur einnig nokkrar fallegar garðplöntur. Þetta er afar stór ættkvísl sem inniheldur hátt í 1000 tegundir sem flestar eiga heimkynni í tempraða beltinu á norðurhveli jarðar.

Fjölgun:


Laukar settir niður að hausti.


Skipting að vori. Hnaus stunginn varlega upp og laukar losaðir í sundur. Það er mikilvægt að passa að stinga ekki í laukana.


Sáning - þarf kaldörvun, best sáð að hausti.

Fræ rétt hulið og haft í 2-4 vikur við stofuhita og svo er best að setja sáninguna út fram að spírun. Spírun getur verið hæg, fræ gæti spírað ári síðar og því mikilvægt að henda ekki sáningunni of snemma. Spírar best við 5-12°C.

Lágvaxin lauktegund með hangandi klasa af purpurableikum blómum.​ Hann vex í vel framræstum jarðvegi í sól eða hálfskugga. Harðgerður og auðræktaður.
Tegundarheitið vísar til Insubria sem er fornt heiti á svæðinu í kringum Mílanó.

Do you have a photo or experience with this plant?

You can share photos and experiences here.

bottom of page