Allium karataviense
Túrkistanlaukur
Laukætt
Alliaceae
Height
meðalhár, um 30-35 cm
Flower color
hvítur með fölbleikum blæ
Flowering
júní
Leaf color
blágrænn
Lighting conditions
sól - hálfskuggi
Soil
vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust- basískt
Toughness
þarf hlýjan, sólríkan vaxtarstað til að blómstra
Homecoming
Mið-Asía
Ættkvíslin Allium, laukar, tilheyrir laukætt, Alliaceae. Hún inniheldur ekki bara matlaukana sem við þekkjum, heldur einnig nokkrar fallegar garðplöntur. Þetta er afar stór ættkvísl sem inniheldur hátt í 1000 tegundir sem flestar eiga heimkynni í tempraða beltinu á norðurhveli jarðar.
Fjölgun:
Laukar settir niður að hausti.
Skipting að vori. Hnaus stunginn varlega upp og laukar losaðir í sundur. Það er mikilvægt að passa að stinga ekki í laukana.
Sáning - þarf kaldörvun, best sáð að hausti.
Fræ rétt hulið og haft í 2-4 vikur við stofuhita og svo er best að setja sáninguna út fram að spírun. Spírun getur verið hæg, fræ gæti spírað ári síðar og því mikilvægt að henda ekki sáningunni of snemma. Spírar best við 5-12°C.
Lágvaxin lauktegund með stórum, kúlulaga klösum af hvítum blómum með fölbleikri slikju. Laufblöðin eru fá, en mjög breið, með blágrænum blæ.