Anemone nemorosa 'Flore Pleno'
Skógarsnotra
Sóleyjaætt
Ranunculaceae
Height
lágvaxin, um 10-15 cm
Flower color
hvítur
Flowering
maí
Leaf color
grænn
Lighting conditions
hálfskuggi
Soil
vel framræstur, frekar rakur, lífefnaríkur og frjór
pH
súrt - hlutlaust
Toughness
harðgerð
Homecoming
Evrópa
Snotrur, Anemone, tilheyra sóleyjaætt, Ranunculaceae og líkjast mjög sóleyjum. Þær vaxa einkum á norðlægum slóðum og upp til fjalla. Margar blómstra á vorin eða snemmsumars, þó nokkrar, eins og haustsnotra, blómstri síðsumars.
Fjölgun:
Hnýði gróðursett að hausti.
Skipting að vori.
Vorblómstrandi skógarplanta sem fer vel í trjábeðum. Hún breiðir hægt úr sér með jarðstönglum og myndar með tímanum breiðu. Blómin eru hvít, fyllt á stuttum blómstönglum. Þrífst best í aðeins rökum, lífefnaríkum, frjóum og vel framræstum jarðvegi sem er aðeins súr.