Aquilegia 'Blushing Giant'
Vatnsberi
Sóleyjaætt
Ranunculaceae
Height
hávaxinn, um 150 cm
Flower color
tvílitur, fölbleikur og hvítur
Flowering
júní - júlí
Leaf color
grænn
Lighting conditions
sól - hálfskuggi
Soil
vel framræstur, frekar rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
harðgerður
Homecoming
garðaafbrigði
Ættkvíslin Aquilegia, vatnsberar, tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae. Þeir eru einnig nefndir sporasóleyjar og er það nafn dregið af hunangssporum sem krónublöðin mynda. Þetta eru harðgerðar plöntur sem kunna best við sig í heldur rökum jarðvegi og skugga part úr degi. Þó eru til fjallaplöntur í þessari ættkvísl sem kjósa að vera sólarmegin í lífinu og vaxa best í vel framræstum jarðvegi.
Fjölgun:
Sáning - sáð að vori.
Fræ varla hulið og haft við stofuhita (ca. 15-20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.
Sjálfsáð planta, líklega afkvæmi 'Rauða Risans' ef marka má hæð plöntunnar. Blómin eru fölbleik, og verða næstum hvít.