![]() |
|---|
Aquilegia fragrans
Ilmvatnsberi
Sóleyjaætt
Ranunculaceae
Height
lávaxinn, um 25-30 cm
Flower color
tvílitur, hvítur og fölgulur
Flowering
júní
Leaf color
grænn
Lighting conditions
sól - hálfskuggi
Soil
vel framræstur, frekar næringarríkur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
harðgerður
Homecoming
vestarlega í Himalajafjöllum
Ættkvíslin Aquilegia, vatnsberar, tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae. Þeir eru einnig nefndir sporasóleyjar og er þa ð nafn dregið af hunangssporum sem krónublöðin mynda. Þetta eru harðgerðar plöntur sem kunna best við sig í heldur rökum jarðvegi og skugga part úr degi. Þó eru til fjallaplöntur í þessari ættkvísl sem kjósa að vera sólarmegin í lífinu og vaxa best í vel framræstum jarðvegi.
Fjölgun:
Sáning - sáð að vori.
Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun sem getur verið hæg. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.
Með fegurri tegundum ættkvíslarinnar. Stór, lútandi blómin minna á hangandi lugtir. Þrífst best í sól eða hálfskugga, í vel framræstum, næringarríkum jarðvegi. Harðgerður.

