top of page

Aquilegia vulgaris 'Pink Bonnets'

Skógarvatnsberi

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Height

hávaxinn, um 90 cm

Flower color

tvílitur, bleikur og hvítur

Flowering

júní - júlí

Leaf color

green

Lighting conditions

sól - hálfskuggi.

Soil

well drained, average

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Toughness

harðgerður

Homecoming

garðaafbrigði

Ættkvíslin Aquilegia, vatnsberar, tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae. Þeir eru einnig nefndir sporasóleyjar og er það nafn dregið af hunangssporum sem krónublöðin mynda. Þetta eru harðgerðar plöntur sem kunna best við sig í heldur rökum jarðvegi og skugga part úr degi. Þó eru til fjallaplöntur í þessari ættkvísl sem kjósa að vera sólarmegin í lífinu og vaxa best í vel framræstum jarðvegi.

Fjölgun:


Sáning - sáð síðvetrar eða snemma vors

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Ef fræ spírar ekki eftir 4 vikur, er ráðlegt að setja það í kæli í 2-4 vikur og færa það svo aftur í stofuhita. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Sort af skógarvatnsbera með tvílitum, fylltum blómum. Þarf frekar vel framræstan jarðveg en gerir annars litlar jarðvegskröfur. Þrífst best í sól eða hálfskugga. Sáir sér lítið.

Do you have a photo or experience with this plant?

You can share photos and experiences here.

bottom of page