Aruncus aethusifolius
Gemsuskegg
Rósaætt
Rosaceae
Height
lágvaxið, um 20 - 30 cm
Flower color
rjómahvítur
Flowering
júlí
Leaf color
dökkgrænn
Lighting conditions
sól - hálfskuggi
Soil
lífefnaríkur, frekar rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
harðgert
Homecoming
Kórea
Geitaskegg, Aruncus, tilheyra rósaætt, Rosaceae. Þau eru náskyld ættkvíslum mjaðjurta (Filipendula) og kvista (Spirea) og eiga heimkynni í deigu skóglendi upp til fjalla á norðurhveli jarðar.
Fjölgun:
Skipting að vori
Sáning - þarf kaldörvun, best sáð að hausti.
Fræ rétt hulið og haft í 2-4 vikur við stofuhita og svo er best að setja sáninguna út fram að spírun. Spírun getur verið hæg, fræ gæti spírað ári síðar og því mikilvægt að henda ekki sáningunni of snemma. Spírar best við 5-12°C
Minnir í útliti á musterisblóm (Astilbe), en blómstrar fyrr. Fær fallega rauða haustliti fái það næga sól.