Campanula lactiflora 'Pink Dwarf'
Mjólkurklukka
Bláklukkuætt
Campanulaceae
Height
hávaxin, um 70 - 90 cm
Flower color
bleikur
Flowering
júlí - september
Leaf color
grænn
Lighting conditions
sól - hálfskuggi
Soil
næringarríkur, vel framræstur, frekar rakur, kalkríkur
pH
hlutlaust - basískt
Toughness
harðgerð
Homecoming
tegundin vex villt í Tyrklandi og Kákasus
Ættkvíslin Campanula, bláklukkur, er stærsta ættkvísl bláklukkuættarinnar, Campanulaceae, með yfir 500 tegundum sem dreifast um norðurhvel jarðar, flestar við Miðjarðarhaf og austur til Kákasus. Tegundir ættkvíslarinnar eru mjög fjölbreyttar frá lágvöxnum háfjallaplöntum, til stórvaxinna engja og skógarplantna. Tvær tegundir, bláklukka og fjallabláklukka, vaxa villtar á Íslandi.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Sáning - sáð að vori.
Fræ ekki hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.
Hávaxin planta sem þarf stuðning.